Borði
tolvudoktor.is á Facebook
Alien Arena 2009 leikjagagnrýni
Fimmtudagur, 25. júní 2009 15:46

 

 

Alien Arena 2009 er leikur sem er gefinn út undir opnu hugbúnaðarleyfi. Sem þýðir að allir geta sótt eintak af leiknum sér að kostnaðarlausu. Þó nokkrir leikir eru gefnur út undir þessum formerkjum en í dag ætlum við að taka fyrir nýjustu útgáfu Alien Arena.

Cor Entertainment sér um þróun leiksins en hann byggir í grunni sinum á grafiskrivél leiksins Quake2 sem ID gaf út sem opin hugbúnað fyrir þó nokkru.

Mikla vinnu hefur verið eytt í að uppfæra leikinn til að nota allar helstu grafísku möguleika OpenGL en það er opið grafískt forritunarumhverfi sem er á við DirectX en er ekki bundið við Windows.

Alien Arena getur keyrt á Windows, Linux og Mac OSX en þó hefur Cor gefið út að útgáfan fyrir Mac OSX tefst einhvað.

Leikurinn er hraður í spilun og minnir óneitanlega á Quake og Unreal Tournament. Leikurinn kemur með 60 borð, níu vopn, sex spilanlega karaktera, sex mismunandi leikjagerðir og margt fleira. Því er óendanlega hægt að spila leikinn og gera alltaf einhvað nýtt.

Eins og sagðist áður þá er leikurinn hraður og hentar mjög vel til LAN spilunnar en einnig að spila yfir netið. Hann er merkilega léttur á hægari tölvur en mikið hefur verið lagt í að hafa leikinn aðgengilegann á eldri tölvum.

Þróun á Alien Arena hófst árið 2003 og hefur komið út í nokkrum útgáfum og en allar útgáfur leiksins hafa verið opinn hugbúnaður og því ávallt spilendum að kostnaðarlausu.

Alien Aren 2009 er fyrsti leikurinn sem við tökum fyrir hér á tolvudoktor.is en í framtíðinni viljum við auka við þá leiki sem við tökum fyrir í leikjagagnrýni.

Einkunnargjafir til leikja eiga eftir að þróast frekar en Alien Arena fær 8 af 10 mögulegum í flokki leikja gefna út undir opnu hugbúnaðarleyfi. Grafíkin og hljóð eru til fyrirmyndar og við mælum með að fólk skoði hann næst þegar á að koma saman og spila skotleiki.

Hægt er að sækja eintak af leiknum á heimasíðu hans hér.

 


blog comments powered by Disqus
 

Alien Arena 2009 leikjagagnrýni

News image

  Alien Arena 2009 er leikur sem er gefinn út undir opnu hugbúnaðarleyfi. Sem þýðir að allir geta sótt eintak af leiknum sér að kostnaðarlausu. Þó nokkrir leikir eru gefnur ...

Leikjadómar | Ritstjóri | Fimmtudagur, 25 júní 2009

Nánar

Sony E3: Samantekt

News image

Sony sýndi sýnar bestu hliðar á seinusta E3. Margt er hægt að segja um PS3 tölvuna en það verður seint tekið frá henni að grafíkin sé ekki upp á sitt ...

Leikjadómar | Ritstjóri | Mánudagur, 15 júní 2009

Nánar

Microsoft E3: Samantekt

News image

Við byrjum þessa samantekt á yfirliti á því sem Microsoft kynnti til sögunnar á þeirra kynningu á ...

Leikjadómar | Ritstjóri | Föstudagur, 12 júní 2009

Nánar

Meira í: Leikjadómar

-
+
4