| Ubuntu 9.10 komin út |
| Fimmtudagur, 29. október 2009 12:13 |
|
![]()
Ubuntu 9.10 kemur út í dag en þetta er ellefta útgáfan af stýrikerfinu sem mun líta dagsins ljós. Ubuntu er útgáfa af Linux stýrikerfinu sem er útgefið af Canonical. En Ubuntu notast við sama pakka kerfi og Debian en hugsjónin á bakvið Ubuntu er að gefa út nýja útgáfu á sex mánaða fresti. Þaðan koma útgáfunúmerin. En seinasta útgáfu 9.04 kemur út í fjórða mánuði ársins og 9.10 kemur út í tíunda mánuði ársins og svo koll af kolli. En næsta útgáfa er 10.04 sem mun bera vinnuheitir "Lucid Lynx". Vinnuheiti eða frekar er betra að kalla það gælunafn 9.10 er "Karmic Koala". Breytingar sem gerðar hafa verið á Ubuntu milli 9.04 og 9.10 eru að mestu leyti í bakgrunninum. En mikil vinna hefur verið sett í að hraða ræsingu á Ubuntu í þessari útgáfu og einnig er búið að breyta útliti þegar tölvan er ræst. Uppsetning forrita er nú gert í gegnum nýtt viðmót með "Ubuntu Software Center". En þegar forrit eru sótt og sett upp þá þarf einungis að opna þetta eina forrit og skoða öll þau forrit sem eru í boði. Ubuntu One er ný þjónustua sem fylgir með Ubuntu en með henni geturðu geymt allt að 2GB á miðlægum þjóni frítt. Ef óskað er eftir meira en 2GB þá er hægt að leigja það fyrir 10$ á mánuði. En þegar skrár eru geymdar í Ubuntu One þá er hægt að láta þær stemma sig af á milla tölva sem keyra Ubuntu en einnig er ávallt hægt að nálgast skrárnar á netinu. EXT4 verður að sjálfgegnu skráarkerfi en það býður upp á skilvirkari vinnslu og ýmsar aðrar nýjungar. Fullur listi af nýjungum má finna hérna. Hægt er að sækja Ubuntu í innlendu niðurhali hér. |
Ubuntu 9.10 komin út![]() Ubuntu 9.10 kemur út í dag en þetta er ellefta útgáfan af stýrikerfinu sem mun líta dagsins ljós. Ubuntu er útgáfa af Linux stýrikerfinu sem er útgefið af Canonical. ... Hugbúnaður | Ritstjóri | Fimmtudagur, 29 október 2009 Nánar |
Snow Leopard gagnrýni![]() 28 ágúst árið 2009 nýju gaf Apple út nýjasta stýrikerfið sitt: Snow leopard (Mac os X 10.6), nokkrum vikum á undan áætlun. Fljótlega á eftir var kerfið sett upp o... Hugbúnaður | Ritstjóri | Þriðjudagur, 8 september 2009 Nánar |
Greining á DirectX 11![]() Microsoft er í óða önn að klára undirbúning á útgáfu Windows 7. Með því fylgja ýmsar nýjungar en í dag ætlum við að taka fyrir DirectX sem er hlutinn sem ... Hugbúnaður | Ritstjóri | Fimmtudagur, 18 júní 2009 Nánar |
Google Android![]() Hvað er Google Android spyrðu kannski sjálfan þig. Árið 2006 fór netheimur á taugum yfir leynilegu verkefni sem Google var að vinna að. Allt benti til að Google væri að ... Hugbúnaður | Ritstjóri | Miðvikudagur, 17 júní 2009 Nánar |
Fedora 11 - Leonidas![]() Fedora er útgáfa af Linux sem er styrkt af Red Hat og nú 9 Júní var gefinn út ný útgáfa af þessari vinsælu útgáfu af Linux. Tveimur vikum eftir ákveðinn ... Hugbúnaður | Ritstjóri | Miðvikudagur, 10 júní 2009 Nánar |
|
|
Meira í: Hugbúnaður |
|
- + 4 |
|






