| Hvernig virka 3D sjónvörp |
| Fimmtudagur, 07. janúar 2010 10:58 |
|
![]()
Árið í ár verður líkast til þekkt fyrir nýjungar í þrívíddarsjónvörpum þar sem þónokkrar tilkynningar hafa verið gefnar út um að útsendingar í þrívídd er að hefjast í Bretlandi og Bandaríkjunum í ár. En einnig eru allir helstu framleiðendur sjónvarpa að koma með sína útgáfu af þrívíddarsjónvörpum í ár og útsendingar frá næstkomandi heimsmeistaramóti í fótbolta munu vera teknar upp með þrívíddartækni sem dæmi. En hvernig virkar þrívíddin í sjónvörpum? Til að byrja með þá er það að þakka nýjum staðli fyrir Blu-Ray kvikmyndadiska sem geymir nú myndirnar í þrívídd. Munurinn er sá að þrívíddarmyndardiskur geymir tvo ramma í stað eins á venjulegum myndadiski. Þar að segja þá er einn rammi fyrir vinstra auga og annar fyrir hægra. Til þess að geta nýtt sér þessa þrívíddartækni þá þarf að kaupa sér nýja Blu-Ray spilara og nýtt sjónvarp. Sjónvörpin þurfa að geta sýnt 120 ramma á sekúndu til að hægt sé að nýta sér þessa tækni og þó svo að nýjustu sjónvörp í dag geti sýnt myndir með þessum rammahraða þá vantar í þau sérstakan kubb sem getur skilgreint á milli hvor rammi sé fyrir vinstra eða hægra augað hverju sinni. Einnig mun þurfa að notast við sérstök gleraugu með þessum sjónvörpum en þau nefnilega skyggja fyrir eitt augað hverju sinni í takt við sjónvarpið til að búa til þá brellu fyrir heilann að myndin sem verið sé að horfa á sjáist í þrívídd. Oftast hlusta gleraugun á sjónvarpið með annaðhvort útvarpsbylgjum eða innrauðu ljósi til að átta sig á í hvaða takt á að skyggja fyrir hvort augað. Eitt er líka vert að minnast á að eigendur PS3 leikjatölva munu geta uppfært leikjatölvuna sína og spilað þrívíddar Blu-Ray myndir án nokkurs aukakostnaðar samkvæmt Sony.
|
Hvernig virka 3D sjónvörp![]() Árið í ár verður líkast til þekkt fyrir nýjungar í þrívíddarsjónvörpum þar sem þónokkrar tilkynningar hafa verið gefnar út um að útsendingar í þrívídd er að hefjast í Bretlandi og ... Græjur | Ritstjóri | Fimmtudagur, 7 janúar 2010 Nánar |
HTC Hero fyrstu kynnin![]() Við sögðum frá því í sumar að HTC væri að kynna til sögunnar Hero símann en nú er svo komið að við hjá Tölvudoktor erum með einn slíkan og viljum ... Græjur | Ritstjóri | Þriðjudagur, 17 nóvember 2009 Nánar |
Leyniverkefni Microsoft, Courier![]() Við höfum aðeins skrifað um hina áætluðu iTablet frá Apple og svo virtist sem ekkert myndi skyggja á útgáfu hennar en í dag segjum við ykkur frá Courier frá Microsoft. ... Græjur | Ritstjóri | Laugardagur, 26 september 2009 Nánar |
Fréttaskýring: PS3 slim![]() Sony hefur breytt þónokkru með tilkomu PS3 Slim nú nýverið. Aðalega má nefna að þeir hafa lækkað verðið á PS3 tölvunum yfir alla línuna. Einhvað sem framleiðendur tölvuleikja hafa verið ... Græjur | Ritstjóri | Laugardagur, 22 ágúst 2009 Nánar |
iPhone 3GS í máli og myndum![]() Margir eru búnir að spá því að nýr iPhone myndir líta dagsins ljós fljótlega sem hann og gerði a WWDC. Græjufiklarnir hafa enn ekki náð að éta upp allar upplýsingar ... Græjur | Ritstjóri | Fimmtudagur, 11 júní 2009 Nánar |
Sjálfhlaðandi farsími![]() Sími sem þarf aldrei að hlaða gæti verið of gott til að vera satt. En Nokia í Bretlandi telur sig vera með svarið við því í tækni sem liggur í ... Græjur | Ritstjóri | Fimmtudagur, 11 júní 2009 Nánar |
|
Meira í: Græjur |
|
- + 4 |
|







