|
Miðvikudagur, 05. ágúst 2009 08:30 |
|

Er Apple að stíga einn eitt skrefið inn í framtíðina. iTablet er það nýjasta í herbúðum Apple og þó það sé engin staðfesting þá eru sögusagnirnar farnar að berast héðan og þaðan.
iTablet er iPod touch á sterum. 10 tommu snertiskjár sem býður upp á þráðlaust net. Núna geturðu gengið um með sjónvarpið í töskunni, uppáhaldskvikmyndir, þráðlaust net, bækur og fleira og fleira. iTablet verður einhverskonar samsuða á Macbook og iPod touch.
iTablet hefur verið reglulegur orðrómur í nokkur ár, en það er ekki fyrr en núna að sterkar vísbendingar hafa komið fram um að framtíðin sé á leiðinni í næstu applebúð. Hefur komið sterk vísbending frá Financial Times að þetta apparat sé á leiðinni. Hvenær þetta tæki verður sjáanlegt á markaðnum hefur ekki verið staðfest, en sumar sögusagnir segja að það sé verið að reyna að koma því á markað í september á þessu ári, á meðan aðrar segja að þetta sé hugsað fyrir fyrsta ársfjórðung 2010.
Ef við skoðum þetta nánar þá sjáum við að það eru kostir, en einni gallar við iTablet. Kostir: • 10 tommu snertiskjár • Þráðlaus nettenging • Getur keyrt iPhone forrit • Góð vefbók
En á móti koma spurningar eins og hvernig er rafhlöðuending á svona stórum skjá? Ef það er iPhone stýrikerfið, þá er það frekar takmarkað fyrir þessa stærð af tæki. Og stóra spurningin: Verður maður að skrá sig hjá einhverju netfyrirtæki til að geta notað þetta.
En í dag eru þetta allt bara á ágiskanir byggðar á sögusögnum, svo núna er bara að bíða og sjá.
|